Fréttir

Valgeir starfað í 10 ár
Í dag eru 10ár síðan Valgeir byrjaði hjá Réttingaverkstæði Jóa og var það gæfa fyrir okkur og viðskiptavini fyrirtækisins og óskum við honum til hamingju með þennan áfanga og lítum björtum augum til framtíðar.

Réttingaverkstæði Jóa opnar á nýjum stað
Mikil veisla var og fjöldi manns samankominn á Dalveginum þann 9. janúar 2009 þegar Réttingaverkstæði Jóa opnaði formlega í nýju og glæsilegu húsnæði. 

Er óhætt að fullyrða að öll aðstaða sé til fyrirmyndar og verkstæðið mjög vel búið er snýr að allri aðstöðu.

Réttingaverkstæði Jóa 10 ára
Haldið var uppá 10 ára afmæli Réttingaverkstæðis Jóa þann 16.maí 2008.

Góð mæting var og fullt út úr dyrum. Hægt var að opna út, því verðrið var eins gott og góður sumardagur á Spáni.

5 ára afmæli
Þann 16. maí árið 2003 hélt Réttingaverkstæði Jóa upp á 5 ára afmæli sitt.  Stór veisla var haldin og mættu rúmlega 300 manns sem voru kúnnar, samstarfsaðilar, vinir og vandamenn.  Mikið var um skemmtanir og ræðuhöld og úr varð heljarinnar veisla í veðurblíðunni.



Til baka